Bensó ekki bara fyndin, fallegur, bráðgáfaður og skemmtilegur hann er líka frægur....
20.02.2008 00:22:57 / benso

Ég er Celeb

Góðan og Blessaðan daginn, ákvað að henda inn pistli svona vegna þess að ég lofaði því fyrir noooookkrum dögum. Lítið hefur gerst á síðustu dögum hja mér auðvitað fyrir utan það að ég er orðin einn helsti sérfræðingur í íslenskum körfubolta fyrr og síðar. Var t.d. í viðtali í sportinu í gær að spá í spilin fyrir bikarúrslitaleikina sem verða á sunnudaginn, en þar verð ég í eldlínunni  ásamt mínu liði, Grindarvíkurstelpum þegar við spilum á móti Haukum.  En er ég búin að vera í stífum æfinga búðum hjá Petri Guðmundssyni  að læra alla frasana t.d jæja stelpur fáum stopp núna, boxum út og marga marga fleiri sem eru á ensku flestir, þannig að ég deili þeim ekki þar sem ég bara treysti mér ekki að skrifa ensku. Annarrs er lítið að ske skólinn gengur sinn vana gang, nóg að gera í spæ 203, nóg að gera í spæ 303, jamm þetta er lítið annað en spænska þessi öninn, Hablas es espanol, þurfti að fá hjálp með þennan frasa en það skiptir engu, aðal málið er að ég er að læra og er þroskast úr strákling í ungan og fallegan mann.

 

Hmmm en núna looofa ég að koma með pistill aftur í næstu viku, á meðan þið bíðið eftir stórskemmtilegri færslu frá celebbinu fáið ykkur THULE.....

 

Thule ekki bara bjór, líka léttöl...


» 3 hafa sagt sína skoðun

16.01.2008 02:20:59 / benso

sísísí

er komin til baka eldhress, ekkert er mér óviðkomandi

 

 

 

Nei seigi svona.....

 

 

KV Bensó


» 5 hafa sagt sína skoðun

23.12.2006 22:29:29 / benso

........

Gleðileg jól og farsælt komandi ár, tánkurinn kemur með svaka blogg á milli jóla og nýárs.


» 4 hafa sagt sína skoðun

13.12.2006 22:55:54 / benso

Ertu dópisti? er ekki allt í lagi!

Já djöfull er ég öflugur í blogginu, maður getur varla stoppað. Margt viðburðaríkt hefur gerst síðastliðin sólarhring, ákvað að taka Hödda bunkins á rúntinn í gær um 4 leitið. Okkur datt það allt í einu í hug að fara á leik Ungmennafélags Grindavíkur og Handknattleiksdeildar Kópavogs (UMFGvsHK) á leiðinni datt mér í hug að hringja í Jóhann þ. Ólafsson og tókum við hann með á leikinn (djö hefur hann fitnað) og sáum okkar menn tapa 3-2 á mjög sanngjarnan hátt (djö var Óli Stebbi lélegur) fórum á stylinn á þá fann Jóhann lykt af bjór það endaði með því að 4 klukkutímum seinna lagðist maður í svefnsófann hans Jóhanns vel fullur með skilti af háskólasvæðinu fyrir ofan hausinn á sér(ekki spurja út í þetta skilti, enn eitt ruglið) og hélt utan um Hödda Bunkins. Og í dag er maður búin að vera vel þunnur, minnir mann á gömlu góðu dagana þegar maður var óráðsettur..

Já nú eru margir að furða sig á fyrirsögninni. enda kemur hún fyrri hlutanum ekkert við var svo mættur til læknis klukkan 10 í morgun (20 mín of seint) og við spjölluðum í smá stund, hann spurði hvað væri af mér- ég sagði honum það, hann hlustaði með mjög litlum áhuga og klikkaði eitthvað með tölvumúsinni (er ekki frá því að hann hafi verið að spila bubbúls) og þegar ég er búin að segja frá raunum mínum horfir læknirinn hann Baldur á mig og spyr ertu nokkuð í DÓPINU? ég horfi á hann og segji ha(eins og ég hafi reykt gras uppá hvern einasta dag síðustu 1200 daga) svona haaaaaaa??? Hann spyr aftur ertu í rugli, dópi eða eyrurlyfjum- ég horfi á hann eins og hann sé fáviti og spyr hvort hann sé ekki verri, auðvitað er ég ekki í dópinu.. segji ég og hristi hausinn, það næsta sem hann segjir mættu í blóðprufu á morgun eins og þetta sé einhver áskorun á mig, og auðvitað tók ég hana. Þannig að á morgun á ég að mæta í blóðprufu klukkann 8 í fyrramálið má ekki borða neitt frá 00.00 í kvöld, semsagt átta tíma (vááááá hefur ekki gerst síðastrliðin 13 ár!!!! Ekkert að borða næstu 8 tímana) og geri það auðvitað galvaskur...

en tankurinn segjir yfir og út núna búin að blása bloggið sitt út af skoðunum sínum um íslenska lækna.....


» 5 hafa sagt sína skoðun

11.12.2006 18:20:51 / benso

Allt að gerast-Garður Kúkabær

Já góðir hálsar er að blogga hér annan daginn í röð, fór í Dönsku próf í gær, og gekk bara fínt, fór svo heim á MSN, sem væri valla frá sögu færandi en lenti þar í hörku rifrildi við Ingu Lilju um að Garðurinn sé ógeðslegt bæjarfélag og ætla að tileinka þessu bloggi henni og bæjarfélagsins Garðs.

Garðurinn er skítapleis þar búa 1000 manns þar af 250 pólverjar sem gera fyrir glögga lesendur 25% af bæjarbúum, þarna hefur fólk ekkert að gera. Í nýlegri könnun sem var gerð á vegum Mannlífs var spurt hvað unglingar gerðu helst í Garðinum, Þau svöruðu öll, tíndu radísur á sumrin en spiluðu puttastríð í leikfimisalnum á veturnar, já þetta er stór brotið sveitarfélag. Þetta er eitt minnsta sveitarfélag á landinu og hefur aðeins 0.0033 prósent af íbúum landsins áhuga að búa þar. Sem er auðvitað ekkert skrýtið. Ég ætla að klára að skít út Garðinn með því að segja frá 3 frægustu Garðbúum sögunnar.

1. Inga Lilja er eins konar bæjarhetja í Garðinum, er jú fyrst til að fara í Háskóla þaðan og á metið í Radísu tíningum 1446 á einum deigi, til hamingju Inga þetta met setti hún 31 júlí 2004, og telja menn að þetta met verði aldrei ég endurtek aldrei slegið. Hún fær líka að vera Álfadrottning á hverjum þrettánda útaf hún er ein af fáum sem kann bæði Pólsku og Íslensku, maður þarf nú að kunna bæði ef maður ætlar að vera uppá sviði í Garðinum á skemmtun.

 

 

 

 

 

númer tvö á þessum lísta er Jazek krowonski hann er frægur fyrir að vera fyrsti pólverjinn sem kom til Garðsins fyrir 63 árum

 

 númer þrjú er auðvitað Grétar Einarsson markaskorari.

 

 

 

 

 

 


» 11 hafa sagt sína skoðun

10.12.2006 17:05:17 / benso

já er það ekki?

Jæja á ég að reyna þetta einu sinni enn, já afhverju ekki. Hef ákveðið að viðra hugsanir mínar í bloggheiminum eftir margra mánaðar frí. Eftir margar áskoranir (samt ekkert svo margar). Þessa daganna er allt brjálað að gera hjá framhaldsskólanemum landsins, allavena hjá flestum, ekki hjá mér ég bara nenni ekki að læra,  hef enga sjálfsstjórn til þess að setrjast niður að læra, en fyrir þá sem ekki vita er þetta metnaðarleysi. Ég skil ekki hvað er svona miklu betra að fá 9 í staðinn fyrir 4,5 ég meina maður fær það sama fyrir það er 3 einingar, því skuluð þið sem lærið allan sólarhringinn og rúmlega það, hætta að láta plata ykkur.

en frank the tank ætlar bara að hafa þetta stutt í dag en kemur aftur bráðlega með hressandi og skemmtilegan pistill í anda tánksins...


» 10 hafa sagt sína skoðun

09.04.2006 18:15:25 / benso

puff og piff

jamm er ekki kominn tími á blogg núna, er að rífa mig uppúr enn einum veikindunum semég er búin að lenda í í vetur, þvílikt helv á jörðu, þessi önn verður eitthvað maður er ekkert búin að mætta í skólann... djö nenni ekki að vera í þessum skóla.... en jæja páskafríið er komið og er það nú bara helv fínt en það endar eins og allt annað þannig að maður á kannski bara að fara að hlakka til sumarfrísins.... en nú ætla ég að spurja nú eru strákarnir að fara til tyrklands og stelpurnar til spánar hvað eigum við hin að gera eigum við að djamma skrifið í comment....

hef voða lítið að segja enn ætla að segja nokkur orð um vini mína í næstum bloggum ætla að byrja á einari Helga...

Einar er lítill og MJÖG skrýtin spyr ótrúlegustu spurninga... er svo spurningaglaður að stundum verður maður reiður... einsog þegar einsi hringdi í villz útaf hann var að missa byssurnar(vöðvana) sína þvílikt djöf fífl latur með afbrigðum... góður í fótbolta (næstbestur í 2fl) ég er bestur þótt ég æfi ekki er samt bestur en enda þá bara á nöfnum sem við köllum hann og er það skrýtinn Feitur(það bera allir það nafn í vinahópnum) og svo auðvitað heimskur og má hann vera stolltur af þessum þrem nöfnum... en í ´æsta bloggi tek ég hödda fyrir

tankurinn has left the fucking building


» 4 hafa sagt sína skoðun

20.03.2006 16:49:35 / benso

buff

Var eins og veröldin væri að hrynja í gær dottnir út í körfunni í 8 liða úrslitum á móti skallagrímsmönnum þetta átti bara að vera formsatriði en svona er þetta maður fær víst ekki allt sem maður vill, en nenni ekki að vera í þessu þunglyndi, Þá er bara að snúa sér að næstu málum stelpurnar eru enn þá með og svo auðvitað pólitíkin sem er núna að byrja á fullu, jamm maður er talin skrýtin að hafa áhuga á þessu en þetta er bara eitt það skemmtilegasta sem ég geri, en nóg um það hef eiginlega litla löngun til að blogga þangað til maður nær sér eftir þetta tap, geng ekki heill til skógar....

tank has left the room.....  


» 4 hafa sagt sína skoðun

16.03.2006 13:34:21 / benso

jæja

þá er maður bara enn einu sinni veikur á þessari önn djöfull er þetta helvíti leiðinlegt en núna fékk ég hvorki flensu,kvef né beinverki nú var það ekkert annað heldur en hlaupabólan jamm hlaupabólan vera kominn á þennan aldur og þá loksins kemur hún þvílikt og annað eins..... en ég ætla aðeins að spá hérna fyrir um úrslitakeppnina í körfu bæði í karla og kvenna þar sem ég hef nú ekkert að gera..

byrjum á æðri kynstofninum 

fyrst er að nefna Keflavík sem fá Fjölnismenn í heimsókn held að þetta verði frekar léttur leikir fyrir Keflvíkinga þar sem þeir hafa miklu betra lið heldur en Fjölnismennirnir, Keflvíkingarnir vinna þetta á hraðanum og er mín spá 2-0 keflvíkingum í vil...

næst er að nefna Njarðvíkinga og Ír-inga, Njarðvíkingar með hörkulið en hafa dalað að undanförnu Ír-ingar elíflega í þessu miðjumoði Njarðvíkingar verða án Dóra karls í fyrstu tveim lekjunum þar sem hann er í agabanni (skil ekkert í liði eins og Njarðvík að hafa hauslausan mann fyrirliða)   og svo verður hugsanlega  Brenton ekki með mikill blóðtaka þar, Ír-ingar með tvo ágætis útlendinga og svo með Íslendinga eins og Ómar og Erík gættu strítt Njarðvíkingum en þeir merja þetta 2-1 einn af leikjunum fer í framlengingu...

Þá er komið að KR-Snæfell Kr-ingar búnir að skipta um kana og gerðu þar mikill mistök þar sem nýji kannin hjá þeim er alls ekki góður en þeir eru með hörkulið samt sem áður Pálmi,Fannar,Brynja og fleiri og svo nýr júkki sem gæti gert ágætis hluti Snæfellingar urðu fyrir mikilli blóðtöku frá síðasta tímabili en hafa verið að standa sig ágætlega Magni að eiga sitt LANGbesta tímabil og eru með þrjá góða útlendinga sérstaklega Brown og Igor þetta verður hörkurimma sem Snæfell tekur 1-2 og Kr-Ingar verða fram á næstu jól að naga sig í handarbakið fyrir að hafa skipt um kana

Síðast en ekki síst verður Fjallað um Barrátuhundana úr Borgarnesi á móti Stórrskytunum úr Grindavíkinni, Skallagríms menn eiga heimaleikjarétt og það verður gríðalega erfitt fyrir Grindvíkinga að fara þangað, Borgnesingar með hörkulið þrjá mjög góða útlendinga og svo leikmenn einsog Pétur,Hafþór og Axel en Grindavík hafa sjaldan verið með jafn heilsteypt lið og núna j og B útlendingarnir í liðinu geta báðir spilað körfubolta og þá sérstaklega J sem er einn besti kanninn í deildinni Svo eru leikmenn eins og Palli A,Palli K Gulli Þorleifur Helgi jónas þetta er hörkulið og er mín spá þannig að Grindvíkingar taka þessa rimmu 0-2 en mjótt verður á munum í báðum leikjunum....

Jæja þá er komið að kvenna deildinni 

Þar mætast Haukar-Ís ekki Spurning hvernig þetta fer Haukarnir vinna 2-0 eru hreinlega með lang besta liðið á íslandi í dag þarf ekki að eyða fleiri orðum í þessa leiki...

Í senni leiknum mætast Grindavík-Keflavík Grindavík með ágætis lið góðan kana og stelpur sem geta spilað körfu og eru ungar og efnilega plús Hildur sem auðitað er hokin af reynslu, Keflavíkur stelpur eru ekki með þann kana sem þeim vantar en með mjög góðar Íslenskar stelpur en eiga eftir að lenda í skipsbroti inní teig og því vinnur Grindavík  2-1 og verður heimaleikirnir mikilvægir...


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.02.2006 15:06:33 / benso

Allt að verða vitlaust

á síðustu færslunni hjá mér hélt ég bara að allt ætlaði að verða vitlaust viktor og einhverjir fleiri að missa sig... en lítið að gerast þessa dagana .. tankurinn veikur heima og má ekki fara í skólann fyren í fyrsta lagi á fimmtudag þessi læknastétt er rugluð það er ekkert að mér en samt má ég ekki fara í skólann fussum svei... en annarrs er lítið að gerast hérna í miðpunktinum körfuboltaliðin okkar virðast vera á hraðri niðurleið eftir bikarhelgina kallarni með 0% sigurhlutfall og stelpurnar 50% ekki gott, sérstaklega ekki í bæ einsog Grindavík þar sem pressan er mikill... en reyndar er Kvennaliðið búið að vera kanalaust en það standa nú bætur á því þar sem það er að koma kani á næstu dögum hún er víst hvorki meira né minna en 190 cm og fyrrverandi playboy fyrirsæta (heimild Einar Hannes) og er búist við að aðsókn á leiki eigi eftir að fjölga eftir þessi skipti.. en annarrs er maður bara búinn að vera að vinna einsog vitleysingur bæði í löndunum hjá samherja og þorbirni og allt að verða vitlaust...

held að ég hafi barasta ekkert meira að segja....

tankurinn kveður að sinni enn kemur með eld heitan pistill fyrr en þið haldið. 


» 1 hafa sagt sína skoðun

31.01.2006 22:40:43 / benso

er ekki kominn tími á blogg

jæja ætti maður ekki að byrja aftur eftir smá pásu..... hef reyndar voðalega lítið frá að segja nema hvað helv skólinn er leiðinlegur þessa önnina.. ertu að grínast þvílikt ógeð.. eini tíminn sem er sona alltílagi er kannski saga en annarrs er þetta held ég leiðinlegasta önn sem ég hef upplifað.... lítið hefur verið að djamma undanfarið þar sem það virðast allir vera hættir að djamma höddi blankur... tóti á sjó einar metnaðarfullur en það stendur nú bót á því á fimmtudaginn verður djammað á lákanum grindavík (flottasta stað Íslands) og það fram á rauða nótt.... ódýr bjór og frítt að éta ekki slæmt ha??? þetta gerist aðeins í Grindavík svo er aldrei að vita nema maður hittir nýju vini sína hópfólkið.... þau eiga peninga og finnst ekki leiðinlegt að splæsa.. og svo eru þau búin að bjóða kallinum vinnu 2007 yfir bónstjóri 250.000 þúsund kall á mánuði ekki slæmt... og verð ég ,eð undirmann og allt hann hödda feita..... maður er strax kominn með völd... en hef ekki mikið að segja meira lofa að blogga fljótlega....

the tank has left the room 


» 15 hafa sagt sína skoðun

15.12.2005 19:02:13 / benso

AFSAKIÐ!!!!!!!!!!

jamm þið verðið að afsaka hve langt leið á milli þessa blogga en það er nú bara útaf því að það er búið að vera brjálað að gera hjá mér en þetta lagast vonandi núna..... en fékk útur prófunum í dag náði öllu nema ísl maður verður bara að sætta sig við það 18 einingar af 21 ekki hægt að væla það 64 einingar eftir 3 annir geri aðrir mikið betur nei held að það sé bara ekki hægt... en hef ákveðið að henda einni sögu af sjálfum mér hérna inn....... njótið vel....

Það var daginn sem Atlandsolía var að opna bensínstöð í keflavík og vill svo til að ég er akkúrat að keyra framhjá þegar Árni nokkur Sigfússon er að klippa á borðan þannig að ég keyri inná plannið og set pening inná á mettíma og ætlaði sko að vera fyrstur að kaupa bensín á þessari stöð svo byrja ég að dæla kemur einhver kall alveg brjálaður og sagði að Árni bæjarstjóri hefði átt að vera fyrstur og öskraði á mig að drulla mér í burtu sem ég og gerði.. Græddi reyndar ekkert á þessu nema heiðurinn að vera fyrstur að kaupa bensín þarna(ég veit þvílikur heiður) og jú fékk reyndar mynd af mér í vf með bensín byssuna á lofti... en hef ekki verslað við Atlandsolíu síðan þar sem ég versla ekki við fyrirtæki sem lætur starfsmenn sína öskra á mig.....


» 10 hafa sagt sína skoðun

07.12.2005 22:25:18 / benso

Bensóinn mættur........

Jæja bensóinn mættur aftur eftir stutta bloggpásu en margar andvökunætur.... er búin að standa á haus að læra fyrir þessi helv próf.... pfff er ekki að meika það að vera í skóla núna.... ahhhh sjórinn nei segji svona fer nú ekki að gera þaug miastök... en annarrs er lítið að frétta.. var reyndar ekki búinn að segja ykkur að ég fór á einn rosalegasta körfuboltaleik sem ég hef farið á, á sun usss þvílikur leikur... hef aldrei skemmt mér jafnvel... þar sem Grindavík vann sigur á hólmi 106-105 eftir framlengingu þar sem palli A og þorleifur Ó voru okkar bestu menn... en jæja ætti kannski að koma með sögu eru ekki allir hvort sem er hérna að bíða eftir henni...... EN sagan byrjar þannig að við fórum fjórir frækninir í bíó og hann Einar H var búinn að vera með stæla allt kvöldið... og svo á leiðinni heim þá toppar hann allt og við fáum nóg.. ég segji við strákanna hvort við egum ekki bara að henda stráknum út hjá bláa lóni... og þá fer hann í eina af sínum úber fýlum og segjir ekki neitt en við höldum árfam að skjóta þessu á hann og hann verður alltaf hræddari og hræddari... en svo allt í einu þá heyrum við bara einar segja.... Hæ mamma bensó ætlar að henda mér út hjá bláa lóninu og ég eitthvað hahah á ég að trúa þessu?? en þá heyri ég hann segja jamm talaðu við hann og hann réttir mér símann ég tek upp tólið og þar er mamma hans Einars Helga að biðja mig að gjöra svo vel að henda ekki honum einari sínum út hjá bláa lóninu... þið getið rétt ýmindað ykkur hvað við hlógum það sem eftir var leiðar... allir nema Einar.... En af þessu lærir maður.... maður er aldrei of gamall að hringja í mömmu sína og biðja um hjálp.... þótt maður sé orðin 18 ára......... en bensóinn hendir kannski einni sögu inn um helgina ef þið verðið heppinn....

» 20 hafa sagt sína skoðun

03.12.2005 13:44:22 / benso

Hummmmmmm

Jæja held að ég hafi verið búin að lofa sögu hérna..... en ætla nú fyrst að segja svona frá hvað ég hef verið að bralla.... sem er nú reyndar mest lítið... fór reyndar á jólahlaðborðí gær... þvílik helvsnilld ég hef ekki bragðað eins góðan mat umm þetta var æðislegt... jæja ég er orðin svangur að tala um þettaþannig að ég hugsa að ég vindi mér bara beint í söguna.. það þýðir ekkert fyrir Grindvíkinga að lesa hana þar sem hún er um hann denna og það vita allir hvernig sú saga er.... saga byrjar... það var á góðviðris degi fyrir nokkrum árum að hann denni ákveður að fá vinnu bílinn hjá mömmu sinni lánaðan til að gera eitthvað sniðugt til að drepa tímann..... hann er nú með vini sínum honum jobba og byrjar hann að keyra bílinn og gengur það líka bara svona helv vel... en svo ákveður denni að taka í bílinn en hefur aldre keyrt bíll.... og ætlar að leggja á stað en það vill svo til að hann keyrir beint á nýja flotta fellhýsið... sem vill til að er fyrir framan bílsskúrshurðina.... og fer fellhýsið beint í gegnum hana líka..... hann bakar bílnum leggur honum eins og hann var og vona að enginn taki eftir þessu.... því næst hleypur hann til ömmu sinnar og fær sér að borða.... Jamm margt skemmtilegt gerist hérna í höfuðborginni... enn næsta saga kemur á mánudaginn og verðu hún ekki af verri endanum....

» 18 hafa sagt sína skoðun

01.12.2005 13:16:24 / benso

Fyrsta próf búið 4 eftir...

jæja eitt búið 4 eftir alltof mikið.... þessi helv próf var í sögu í morgun gekk ekkert alltof vel næ samt alveg held ég 7,9,13.... en ég á nú eginlega ekki að vera blogga ætti eginlega bara að vera að læra en jæja maður hefur nú eytt öðrum eins tíma í vitleysu... en var nú bara að blogga þar sem aðsóknin hefur stóraukist eftir að ég sagði þessa sögu en var nú bara að hugsa um að setja aðra sögu  inn en þessi mun vera um haann Vilmund og einar helgi er í svona aukahlutverki þarna.....

Sagan byrjar

Svo leiðis var mál með vexti að Villi og einar voru heima hjá einari saman að horfa á einn góðan klámmara ekki spurja mig afhverju en jæja verðið bara að spurja þá... en svo leiðis var mál með vexti að þeir voru búnir að vera að horfa í smástund og þá dæsir villinn a.k.a coolíó og segjist nú þurfa að fara á klósettið að Tefla við páfann og fer á klósettið á meðan ákveður einar a.k.a fuckface að fara á gluggann jamm fólk er misskrýtið ég veit að kíkja á annan á klósettinu en það skiptir ekki öllu máli.. og býst nú við að sjá villann á klósettinu en nei haldið þið ekki að hann sé bara að kippa í djásnið inná klósettinu þvílikt fífl..... hann var víst   umsvifalaust rekinn út... en gerðist þetta nú fyrir einum 3-4 árum þannig að þeir voru nú enn ungir og vitlausir þegar þetta gerðist.....

En bensóinn kveður....

p.s. næsta saga kemur inn á laugardaginn og er hún alveg æði


» 19 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3